HLJÓMSVEITIN MONKÍS
15.05.2006 15:31:52 / monkey4

Monkís í bæjarstjórn!

19. og 20. maí

Tékkneski íþróttamaðurinn knái Šárka Kašpárková verður 35 ára á laugardaginn og hafa því Monkís ákveðið að halda honum "tribute" tónleika þar sem apakettirnir munu leika eftir hans helstu íþróttaafrek...

Glöggir munu hafa tekið eftir því að dagur þessi hittir skemmtilega á Evróvísíón Söngvakeppnina og hafa Monkís, tileinkað sér alla þá menningu sem til er í kring um það:

Skúli er með Silvíu taktana á hreinu

Skúli hefur stúderað framkomu Sylvíu Nætur eins og sjá má á þessari mynd

Monkí 3 og 4 munu keyra bláedrú yfir heiðina og láta alla ljósastaura á Sæbrautinni í friði með helling af júróvísíón lögum í farteskinu. Monkí2 hefur beðið eftir að fá tilefni til að taka "Draumur um Nínu" í fimmtán ár, eða alveg síðan hann samdi það.

Allir í Pakkhúsið!



» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 13:42:23 / monkey4

Monkís þakka fyrir sig!

Monkey2 stendur nú á tímamótum en í dag fagnar því að hafa talist stjarna helgarinnar!

Í því tilefni var honum gefin ný skyrta sem hann sést hér máta:

Photobucket - Video and Image Hosting

Monkey 3 var ánægður með sjálfan sig eftir að hafa spilað Stooges á Pakkhúsinu og taldi það hafa aukið "cool-factorinn" talsvert:

Photobucket - Video and Image Hosting

Monkey 4 var hinsvegar svolítið lítill í sér eftir að hafa spilað Björgvin Halldórsson á Pakkhúsinu og taldi hann það lækka sinn "cool-factor" talsvert:

Photobucket - Video and Image Hosting

En Monkís þakkar öllum þeim yndislegu manneskjum sem komu á Pakkhúsið um helgina!


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 10:57:01 / monkey4

Monkís í Pakkhúsinu 28. og 29. apríl!

Monkís

Við viljum fá þig á

Pakkhúsið 28. og 29.

apríl!


Hrafn Gunnlaugsson verður með skyggnilýsingu í upphitun og Unnur Birna verður með vörukynningu í pásu, þar sem nýjustu "nipple-slip" kjólatískunni verða gerð ítarleg skil.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 11:55:14 / monkey4

Pump it up

Monkís gigg!!!!


Sökum afskipta Jónínu Ben var sett lögbann á síðasta gigg Mónkís, en við látum þá kerlingu ekki hefta okkar tjáningu og verða því tvö gigg henni til höfuðs

24. og 25. mars

Skúli hlustar ekki á neinar mótbárur, ykkur er gert að mæta!

Ykkur er gert að mæta, ný lög á prógraminu og Monkí3 hefur nú lært bumbuslátt hjá afríkubúum einungis til að gleðja gesti Pakkhússins...


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 17:08:22 / Monkey2

Jibbí, jibbí, whatever...................

FANS - FANS - FANS...

QUESTION: When can I attend the next Monkís concert?
ANSWER: 24th and 25th of march.
QUESTION: Where?
ANSWER: This time the venue is Pakkhúsið.
QUESTION: Can I meet some girls there?
ANSWER: Off course, members of Monkís are all extremely sexy so the women wil be there.
QUESTION: Will I get laid?
ANSWER: An error has occured, please shut down your computer.

Munið bara, ef að ykkur finnst við ekki vera skemmtilegir þá eruð þið leiðinleg.

MTC

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 08:59:14 / monkey4

Það er gigg í gangi!


Monkís


í Pakkhúsinu 20.-21. janúar


Leifur, Skúli og Vignir á góðri stundu

Ghostdigital sér um að hita upp liðið og Sálin spilar í pásu (Monkís munu samt spila öll sálar cover-lögin sín! ) Gjörningaklúbburinn verður með atriði fyrir utan og Nick Cave verður leynigestur og mun þakið rifna af húsinu þegar hann birtist!

Komið bara þegar ykkur hentar...


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 10:05:56 / monkey4

Monkís 3:13

Við fornleifauppgröft í Californiu fannst í gær fornt viðtal við Monkey nr.4, eftir að þartilgerðir sérfræðingar höfðu afkóðað hið torkennilega mál sem viðtalið birtist á, er nú í fyrsta sinn hægt að birta: "the Gospel according to Monkís"

Hvaðan kemur nafngift meðlima bandsins?

Monkey4: Margir halda kannski að við köllum okkur eftir hljómsveitinni líkt og dýrlingarnir í The Ramones, en það er nú aldeilis ekki. Veit ég að Monkí2 nefnir sig eftir Prússneska herforingjanum Monkistopheles II, Monkey3 er í raun skammstöfun og stendur fyrir Morning Of Nonexistent Killings, Except You Three, tekið upp úr ljóðabók Dolly Parton, Monkey4 er að sjálfsögðu vísun í ódauðlega ræðu Winston Churchills þegar hann tók við Eddu-verðlaunum fyrir besta leikna gamanþáttinn.

Hver er ykkar uppáhalds íshella?

Monkey4: ég get nú ekki talað fyrir hina apakettina, en þegar horft er til Antartíku verð ég tvímælalaust að segja að mín uppáhaldsíshella sé Larsen B.

Hvaðan kemur öll þessi reiði sem heyra má í flutningi ykkar?

Eins og heyra má í lagi nr 34. á fjórðu plötunni; "Banking is my Business" sprettur þessi reiði af brostnum draumum mínum um að verða einhverntíman starfsmaður í banka.

Hvernig byrjuðu hatrammar deilur ykkar við "Michael Winslow" eiginlega?

Hann var eitthvað að monta sig af því að hann gæti nefnt öll spilinn í spilastokknum og svo þegar hann gleymdi laufaþristinum hlógum við svo mikið að hann fór að bera út leiðinda sögur í hefndarskini. Það skal því tekið fram að ég hef aldrei, né mun nokkurn tíman lesa bók eftir Vigdísi Grímsdóttur! En það má heyra alla söguna í prósaformi í laginu "the three of clubs."

Hvert var eftirminnilegasta giggið ykkar?

Eftirminnilegasta giggið verður tvímælalaust á eftir í samkomusal miðstöð menntunar suðurlands, sérstaklega fyrir þær sakir að ég mun nota ágóðan til að kaupa mér gríðarlegan overdrive-pedal...


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 16:08:24 / Monkey2

Fréttir les Monkey2

Eftir óeirðirnar í Frakklandi hefur Jacques Chirac ákveðið að standa að góðgerðartónleikum á Pakkhúsinu um næstkomandi helgi. Fólk er vinsamlegast beðið að afhenda 1000 krónur við innganginn, taka stuttan hring og hlusta á eitt til tvö lög og fara svo út þannig að fleiri komist að. Hljómsveit helgarinnar verður Monkís en þeir hafa verið að geta sér gott orð á öldum ljósvakans síðustu misseri. Allur ágóðinn mun renna til samtaka sem stofnuð hafa verið í kringum hörmungarnar síðustu vikur og ég Gosi er kominn með risastórt nef.

 

 



En það þýðir samt ekki að allt í þessari frétt sé skáldskapur því að Monkís munu leika tónlist um helgina á Pakkhúsinu. Samkvæmt nýjustu skoðannakönnunum hefur fylgi hljómsveitarinnar aukist um 9% frá því í maí og því má búast við að um 400 manns muni mæta hvort kvöldið. Monkey3, oddviti þeirra Monkís manna hefur lofað komandi gestum því að leika mörg skemmtileg lög þar sem að hverjum og einum er frjálst að dansa. Því eins og Monkey4 segir, “dansa, hvað er betra en að dansa”.

 

 



Því hvetjum við alla landsmenn að mæta um helgina og setja X við M, eða Exemm eins og sumir glíma við. Nú finnst mér brandarar þessara frétta hafa farið versnandi og hef því ákveðið að kveðja ykkur núna.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 23:12:26 / Monkey2

Ó guð vors land !

Gætum við fengið að heyra eitthvað íslenskt? Þau sem eiga það til að nota þennan frasa við skemmtanahald eru vinsamlegast boðuð á Gjafakofann fyrir aftan lesgeymsluna sem er fyrir framan splæsklúbbinn sem er við hliðina á heitsdrykksbolla sem er við hliðina á fjónspeningageymslunni föstudagskvöldið 30. september næstkomandi. Monkey1 er kominn aftur eftir langt og strangt tónleikahald út um allt land með hinni hljómsveitinni sinni. Þar sem að hann er íslenskusérfræðingur hljómsveitarinnar og Bon Scott/Brian Johnson hljómsveitarinnar verður talið í bæði Shook Me All Night Long ásamt flórunni af íslenskum slögurum. Að vanda verður engum tíma varið í æfingar enda erum við allir svo hæfileikaríkir að þess gerist ekki þörf. Við munum þó bjóða upp á nýjung á þessum tónleikum en við hyggjumst reyna að slá Íslandsmet í bæði hávaða og látum. Lágvaði og stóðtum því gamlar fréttir sem við hyggjumst jarðsyngja þetta umrædda kvöld (og þetta er víst fyndinn brandari).


Að tilefni dagsins höfum við ekki sett upp nýja skoðanakönnun, við bættum inn engum myndum og við hvetjum fólk til að skrá sig ekki í gestabókina.

Traustir vinir, húsið og ég bjóðum alla velkomna langt fram á nótt þar sem að við hvetjum fólk til að vera það sjálft og biðjum það að haga sér eins og það væri statt í sódómu.

MTC



 

 



 

 



 

 




» 5 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 23:27:03 / Monkey2

Guðir framtíðarinnar

Aðdáendaklúbbur Monkís mun stækka í vikunni. Kristin trú er á hraðri niðurleið með tilkomu Monkís þar sem að fyrsta boðorðið segir “þú skalt ekki hafa aðra guði en mig” og eftir að Monkís munu trylla lýðinn í Hreðavatnsskála á fimmtudaginn næstkomandi munu ballgestir trúa á þrjá nýja guði. Að nefna meðlimi Monkís guði er samt svolítið “understatement” þar sem að sá guð sem við flest þekkjum skapaði bara jörðina sem er nú lítið miðað við þá tóna sem að Monkís skapa þegar að þeir koma saman.

 

“Eftir síðustu stórtónleika Monkís skammast ég mín hálfpartinn fyrir þá sköpun sem ég hef hingað til státað mig af”. Sagði guð í viðtali við Séð og Heyrt. Guð sagðist einnig vinna nú hörðum höndum við að læra á gítar svo að hann geti skapað tónlist. “Ég var að ná því hvernig maður skiptir úr G moll í D dúr þannig að þetta er allt að koma” sagði guð með bros á vör þegar blaðamaður hitti hann við kaffibolla á Hressó í vikunni.

 

En hvað er það sem að gerir Monkís svona yfirmáta merkilegri en annað fólk?

 

“Þeir er bara svo fallegir” (Unnnur Steinsson)

“Þeir eru ástæðan fyrir því að ég ætla að eyða alla vega 15000 krónum minna í næstu klippingu og litun” (Ásgeir Kolbeins)

“Ef þú spilar lag númer sex á fyrstu plötu Monkís aftur á bak þá heyrist skýrt ‘kjósum Gísla Martein næsta borgarstjóra’” (Gísli Marteinn Baldursson)

“Play Misty for me” (Clint Eastwood)

“Þeir gefa hugtakinu tónlist alveg nýja merkingu, rómantík, almætti, unaður, verðmæti, dyggð, ást eru allt hugtök sem blandast saman þegar þeir telja í” (Heimspekinemi í HÍ)

 

Ef ykkur fannst fellibylurinn Katrín merkilegur í mannkynssögunni þá bíðið bara eftir forsíðumynd morgunblaðsins á föstudaginn og fréttunum sem fylgja í kjölfarið eftir að Monkís munu stíga á stokk, sögubækur framtíðarinnar eiga eftir að skrifa sig sjálfar.

 

MTC


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.07.2005 01:36:05 / Monkey2

BÚúú!!!

Klukkan var að ganga fimm og göturnar voru auðar fyrir utan einn mann með tréfót úr áli. "smell, smell" heyrðist þegar maðurinn gékk rólega framhjá rakarastofunni. "Hver er þetta" kallaði Pétur rakari inn húsasundið. "smell, smell" var það eina sem heyrðist. "Hver er þetta" öskraði Pétur aftur og lagði frá sér skærin er hann gekk að stóru rúðunni til að sjá hver þarna færi. "smell, smell" hljómaði hærra og hærra þegar að Pétur opnaði útidyrahurðina og skimaði til vinstri inn dimmt sundið. Skyndilega hættu smellirnir að heyrast og einu hljóðin sem Pétur heyrði komu frá kvöldgolunni sem hvíndi í daufum bæjarluktunum. Hann skimaði til hægri. "Hvað kostar að fá skærgrænan hanakamb Pétur" spurði lítill strákur með Jójó.

Líkaði þér þessi saga, fáðu að heyra hana sagða í réttu umhverfi ásamt fleirum á Draugasetrinu á laugardaginn um næstu helgi þegar að hljómsveitin MONKÍS mun stíga á stokk og hræða líftórunua úr bæjargestum. Á prógrammið hefur verið bætt lögum eins og Ghostbusters, þema lagið úr Exorcist og Stolt siglir fleygið mitt, allt í tilgangi þessa giggs.

Monkey 1 hefur linnulaust eytt hundruðum tíma í að sauma draugabúninga úr beinhvítum lökum frá versluninni Íris og Monkey 3 er búinn að vera að safna hori og naflakuski í dós vikum saman sem við ætlum að nota sem props.

Ef þið eruð heppin þá gætuð þið fengið að heyra "smell, smell" eða þá hvern smellinn á fætur öðrum því að MONKÍS hafa þrátt fyrir mikinn mótbyr um síðustu helgi ekki ennþá klikkað á að koma fólki í gírinn. Allir þeir sem geta látið Helga Valberg bregða fá frítt inn hinir fá frítt út (að borða með Helga Valberg (á Fjöruborðinu (í september (á næsta ári (ef þeir borða fisk (sem hefur verið veiddur úr hafinu (sem umlykur öll löndin (þar sem við fólkið búum (og vinnum (og elskumst (og deyjum)))))))))).

Trúir þú á draugasögur úr Þykkvabænum (eyrun stækka)?

MTC


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2005 10:59:14 / Monkey2

Dansa, hvað er betra en að dansa?

Fyrir þúsundum ára spurði vitur maður, hver er kvarðatrótin af 16. Múgurinn svaraði reiður MONKÍS!!! MONKÍS!!! MONKÍS!!!

Hvað segir þessi dæmisaga okkur? Jú, hin stórfenglega, bráðskemmtilega, frumlega, einstaka, yfirmáta fallega, loðna og hressa hljómsveit Monkís munu leika á dansleik þann 8. júlí og svo aftur þann 9. júlí á húsi pökkunarmeistarans og pizza kóngsins Elvars Gunnarssonar. Fjörið mun hefjast eldsnemma um morguninn (svona hádegi) og standa fram á nótt (2013) því að þar sem að fleiri en einn monkey koma saman þar er stuð.

Langt er um liðið síðan að Monkís snertu hljóðfærin sín og því má búast við einhverjum mistökum, lítilli textakunnáttu og setningum eins og "bíddu, ég þarf að tjúna", "ég heyri ekkert í mér í mónitor" og "ég tek ekki neitt helvítis sálarlag".

En allt er þetta partur af hinni áralöngu hefð sem heitir í dag GAMAN. Monkís munu áreita aðra geisladiska í Kringlunni einhverntíman í vikunni á undan, ég get ekki nefnt nákvæma dagsetningu út af löggæslusveit Íslendinga formally known as Löggggan.

Miðaverðið verður stillt í hóf, aðeins 17.000kr. helgin fyrir hjón með tvö börn, morgunmatur innifalin.

Ef að þú verður ekki þarna þá skal ég lofa þér því að ÞÚ VERÐUR EINHVERSSTAÐAR ANNARSSTAÐAR!!!! VEIIIII VEIIIIII

(Lesist eins og dagskrárgerðarmenn hjá FM957 gera það).

MTC


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2005 17:24:03 / Monkey2

Næstum því allt að ske

Monkís munu spila páskadansinn og dansa í kringum páskatréið annað kvöld, miðvikudagskvöldið 23. mars. Við höfum heyrt að páskasveinarnir þrettán ætli að kíkja í heimsókn og gefa stilltum gestum gjafir. Hengdar verða upp páskaseríur og páskaskraut og Pakkhúshöllin látin líta út eins og páskahof.

Því miður verður Monkey1 ekki með Monkís annað kvöld, óstaðfestar heimildir staðfesta að hann sé ekki nógu staðfastur til að standa fastur á sínu. Annars las ég gulu pressunni að hann væri bara fastur á einhverum öðrum stað.

Alla vega mun staðgengill, Logi staðgengill (Flame Replacement), leysa Monkey1 af á morgun og þar sem að hann spilar ekki á pan flautu mun Monkey2 færa sig yfir á bassann, Monkey3 mun leika á kokhörpu og Logi mun því leika sér við alla krakkana sem verða að dansa í kringum páskatréið ásamt páskasveinunum þrettán þar sem að öll dýrin í skóginum eiga að vera páfagaukar.

Fjöri lofað, ekkert sofað, yfir klofað, yfir vofað, yfir kofað. GRIP. Vinsamlegast hlaupið af stað.

MTC


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2005 23:54:44 / Monkey2

Undur og stórmerki vs. Brundur og barmmerki

Viti menn, Monkís eru komnir með gigg og það ekki af verri endanum heldur af þeim betri. Staðurinn er Pakkhúsið, tíminn er fim 20. - lau 22. jan 2005, miðasalan hefst örugglega einhverntíman, hljómsveitin er ekkert búin að æfa og lofar því sínu hefðbundna spunaprógrammi í bland við þessi 12 lög sem þeir kunna og grúppíur eru vinsamlegast beðnar um að bíða eftir okkur inni í hljómsveitarherbergi að dansleik loknum.

Aðdáendur Monkís hafa örugglega lesið í The Sun slúðrið um að Frank Sinatra ætli að syngja með okkur lau. 22. jan næstkomandi en ég vill leiðrétta það. Frank getur því miður ekki sungið með okkur þennan dag þar sem að hann er dáinn en umboðsmaður hans lofaði okkur a Frank myndi syngja með okkur einhverntíman í mars, þannig að fylgist með.

Nú er nýjasti singúll Monkís komin út og heitir hann If the Weather Was Snowie in Iceland. Gagnrýnendur eru allir á sama máli um að þetta lag sé eins gott og Love me Do með bítlunum. Í viðtali við Séð og Heyrt sagði Monkey1 að honum fyndist það ekki skrítið þar sem að um sama lag sé að ræða, þ.e. við stálum gripunum, laglínunni og öllum textanum en skírðum lagið bara öðru nafni. Blaðamaður Séð og Heyrt endaði grein sína and I quote: "Sniðugir strákarnir í Monkís".

Myndbandið við lagið kemur út um leið og við finnnum upprunalega myndbandið við Love me Do en erfitt reynist að ná í menn eins og John Lennon og George Harrison, ég er farinn að halda að þeir séu eitthvað merkilegir með sig og séu að screena okkur strákana í Monkís, en við munum vinna að lokum.

Sjáumst á dansleik,

MTC

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2004 21:04:08 / Monkey2

In the name of law

Monkís vilja biðja aðdáendur sína afsökunar á því að ekkert varð úr dansleiknum á jóladagskvöld. Ekki er hægt að kenna neinum um nema lögreglunni sem fékk þá flugu í höfuðið að banna ballið klukkan 21:00 á jóladag. Monkís eru mjög reiðir út í lögregluna og vinna nú í því að semja sjálfstætt framhald af laginu Copkiller sem að Ice-T gerði vinsælt fyrir nokkrum árum síðan. Lagið kemur til með að heita Destroy allt the Cops in the Universe eða DatCitu. Lagið er í kántrístíl og í því má meðal annars heyra í fiðlu, pan flautu, kokhörpu og matskeiðum svo eitthvað sé nefnt. Áætlað er að lagið komi út 4. febrúar 2005 og verður hægt að nálgast smáskífuna annars vegar í verslunum BT og hins vegar í versluninni Ingólfur, a.k.a. Daddabúð. Verðið verður í lágmarki eða aðeins 299 krónur stykkið og á fyrstu 10.000 eintökunum verður að finna b-hliðarlagið Hundred hands holding heavy hounds.

Nú eru Monkís í smá fríi en fylgist vel með hér á síðunni hvenær næsti dansleikur verður og við vonum svo sannarlega að stöðumælaverðirnir með bláu ljósin stöðvi ekki fjörið aftur.

MTC

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2